Terms of service

 

Almennt

    Þjónusta Ps. Árangurs er háð eftirfarandi skilmálum. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál. Vinsamlegast lestu vel yfir skilmálana, það mun fyrirbyggja allan misskilning og stuðla að góðum samskiptum í framtíðinni. Þú getur sent tölvupóst á info@psarangur.is ef þú hefur spurningar um skilmálana.


    Skilgreiningar

      Seljandi er Ps. Árangur / Sandra Erlingsdóttir
      Kennitala: 270798-3229
      Áshamar 35 Vestmannaeyjar
      sími: 866-7924.
      Kaupandi/notandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi.

       

      Þjónusta Ps. Árangurs

        Ps. Árangur veitir næringarráðgjöf í gegnum netið og veitir kaupendum/notendum aðgang að vefsvæði Ps. Árangurs. Um er að ræða aðgang að eftirfarandi skjölum: Árangurs skjal, samskipti við þjálfara og annað fræðsluefni frá höfundum. Markmið þjónustunnar er að veita notendum aðhald og aðstoða þá við að ná bættum árangri og betri heilsu.

        Skilaréttur

          Þar sem um rafræn gögn er að ræða er ekki möguleiki á að skila gögnum.

          Ef galli kemur fram í gögnum eða gögnin standast ekki kröfur neytanda vinsamlegast hafið samband við info@psarangur.is

          Verð og verðbreytingar

            Verð fyrir þjónustu Ps. Árangurs er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Ps. Árangur áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Ps. Árangur áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

            Þegar greitt hefur verið fyrir þjónustu þá er kominn á samningur milli Ps. Árangurs og kaupanda. Það er á ábyrgð notanda að réttar greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu.

            Áskrift og greiðslur í áskrift

              Samningur að grunnnámskeiði Ps. Árangurs er með 8 vikna binditíma og framlengist hann ekki sjálfkrafa að binditíma loknum. Notendum er þó ávallt frjálst að óska eftir framlengingu og fara þá á framhaldsnámskeið. Þegar kaupandi kaupir áskrift er hins vegar 2 mánaða binditími og til þess að segja upp áskrift þarf að segja upp áskriftinni með eins mánaðar fyrirvara.

              Þegar kaupandi skráir sig í áskrift er hann skráður í þjálfun þar til uppsögn berst, óháð nýtingu. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við næstu mánaðarmót frá uppsögn. Áskriftargjaldið er innheimt í byrjun hvers mánaðar með sjálfvirkri kröfu í banka eða millifærslu. Gjaldið er innheimt, óháð nýtingu, þar til uppsögn er lögð inn með viðeigandi uppsagnarákvæði.

              Greiðsluskilmálar

                Vefverslun Ps. Árangurs tekur á móti öllum greiðslumátum. Greiðslur fara fram á vegum Saltpay inn á sértæku öryggissvæði sem er á þeirra vegum. Einnig er hægt að biðja um kröfu í heimabanka. Aukagjald við kröfu í heimabanka er 150kr. Ef óskað er eftir að greiða með millifærslu, vinsamlegast sendu póst á info@psarangur.is


                Afhending á vöru og gildistími

                  Þegar greitt hefur verið fyrir námskeið Ps. Árangurs fær kaupandi spurningalista sem við óskum eftir því að hann svari. Afhending á gögnum eru send kaupanda í síðasta lagi 24 klst áður en námskeið hefst. Kaupandi hefur aðgang að skjölum Ps. Árangurs á meðan þjálfun stendur og í lok tímabils lokast fyrir aðgang. Dreifing á gögnum sem notandi fær sent er með öllu óheimil. 

                  Höfundar og dreifing gagna á vefsíðu

                  Gögn á vefsíðu má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta til eða í heild án skriflegs leyfis frá höfundum.

                  Persónuupplýsingar og trúnaður

                    Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Við virðum friðhelgi notanda og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Hluti af því að nýta sér þjónustu Ps. Árangurs felst í því að notandi veiti okkur upplýsingar um sig, sem kunna að vera persónuupplýsingar og viðkvæmar persónuupplýsingar, en við nýskráningu veitir notandi m.a. aðgang að kennitölu sinni, nafni og öðrum persónu upplýsingum. Ástæðan fyrir því að notandi veiti okkur þessar upplýsingar er einföld, með því getum við veitt notanda mun betri þjónustu. Það er alltaf undir notanda komið hversu miklar upplýsingar hann kýs að veita okkur. Farið er gætilega með allar trúnaðarupplýsingar sem notandi gefur upp.

                    Lög og varnarþing

                      Komi upp ágreiningur eða telji kaupandi sig eiga kröfur á hendur seljanda á grundvelli þessara skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Skilmála þessa skal túlka í samræmi við íslensk lög, varnarþing seljanda er heimilisfang hans.