Það sem þarf á mann:
200 gr þorsk- eða lönguhnakka
3 msk snakk (5 gr)
- notaði h-berg próteinsnakk með sýrðum rjóma og lauk
1 msk rifinn parmesan (5 gr)
1 msk steinselja
1 væn tsk dijon sinnep (10 gr)
1/2 tsk eggjahvítur
salt og pipar
Aðferð:
1. Miljið snakkið og blandið þvi saman við parmesan, steinselju og smá eggjahvítu, nóg svo að blandan festist aðeins saman (má líka nota olíu) - gott að “hnoða” þetta svona aðeins með höndunum
2. Þerrið fiskinn, kryddið hann með salt og pipar, smyrjið svo sinnepinu á aðra hliðina og setjið parmesan blönduna yfir.
3. Fiskurinn svo settur í airfryer á 180 gráður í 12-15 mín (fer eftir þykkt flakanna)
Líka hægt að setja í ofn á ca 200 gráður og blástur í 10-12 mín og svo á grill stillingu og færa fiskinn ofar í ofninum í ca 3 mín til að gera raspinn enn meira krispy
Gott að bera þennan rétt fram með kartöflumús og salati😋
Macros:
Kcal: 222
K: 7 gr
P: 39 gr
F: 4 gr
Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur!
