Þetta er eitthvað sem við eigum alltaf á okkar heimili 😌
Það sem þarf:
2 litlir bananar (185 gr)
23 gr hnetusmjör
300 gr hafrar
60 gr kasjúhnetur
100 gr möndlur
12 gr maple sýróp
20 gr graskersfræ
ca 2 tsk kanill
vel af salti (nota örugglega 1 msk)
45 gr rúsínur
45 gr döðlur
Aðferð:
1. Stappa saman banana og hnetusmjöri
2. Öllu nema rúsínum og döðlum bætt við.
Ef blandan er of þur er hægt að bæta aðeins af sýrópi eða hnetusmjöri - áferðin á að vera smá sticky.
3. Inn í ofn á 160 gráður í 15-20 mín, þangað til að það er farið að taka á sig smá lit.
4. Taka út úr ofninum, hræra aðeins til í blöndunni og bæta við döðlum og rúsinum. Sett svo aftur inn í ofn í ca 15 mín, þangað til það er orðið crunchy.
5. Kælið alveg áður en þetta er sett í krukku
Hér má að sjálfsögðu bara nota þau fræ/hnetur sem þið eigið og leika sér smá með uppskriftina, t.d. bæta við kókos, vanilludropum, trönuberjum eða jafnvel súkkulaði!
Macros í 100 gr:
Kcal: 431
K: 47,8 gr
P: 14,2 gr
F: 18,2 gr
Hér er video af okkur á instagram búa til þessa uppskrift
