Svo ótrúlega auðvelt að gera sína eigin smoothie skál heima og mun ódýrara (og betra) 😋
Það sem þarf:
250 gr skyr
- notaði hér 130 gr hreint og 120 gr vanillu
110 gr frosnir ávextir
- notaði hér 50 gr jarðaber, 30 gr bláber og 30 gr mangó
130 gr frosið blómkál
Smá salt
Aðferð:
1. Allt sett í blender, hér er key að vera með góðann blender.
Blandað í ca 30 sek, skafa svo meðfram hliðum og blanda aftur í ca 20 sek.
Toppaði svo með banana, eplum, sykurlausa granola-nu (sjá uppskrif í fyrri færslu) og hnetusmjöri.
- líka hægt að nota powdered peanut butter til að spara fitu
Svo er gott að strá kakó eða kanil yfir líka fyrir smá extra ✨
Það má að sjálfsögðu sleppa blómkálinu eða setja minna en mæli með að prófa! Finn lítinn bragðmun en það gefur meira volume, betri áferð og er auðvitað stútfullt af næringu😌
Macros í 100 gr:
Kcal: 222
K: 24 gr
P: 28 gr
F: 1 gr
