Pestó kjúklingur

Pestó kjúklingur

Þetta er einn af okkar uppáhalds!
Ótrúlega einfaldur og lítið uppvask 🙈


Það sem þarf fyrir 1:
1 kjúklingabringa (200 gr)
1 væn msk léttur rjómaostur (kubburinn 18 gr hér)
1 msk pestó, ca 15 gr (finnst best að nota rautt)
1 msk soya sósa
2 msk mjólk
pipar og hvítlaukskrydd
Hrísgrjón (40gr hrá hér)

Salat:
Iceberg
rauðlaukur
avocado
feta ostur eða fetakubbur
ólífur (má sleppa)
salt og hvítlaukspipar

Aðferð:
1. Sjóðið hrísgrjón
2. Rjómaostur, pestó, soya, mjólk og pipar sett í eldfast mót. Þetta er hitað í örbylgju þangað til rjómaosturinn hefur bráðnað.
3. Kjúklingur skorinn í bita, settur í fatið, velt upp úr blöndunni og kryddaður
4. Þetta fer inn í ofn á 180 gráður í ca 15-20 mín (fer eftir stærð kjúklingabitanna).
Á meðan er salatið græjað.
5. Iceberg, rauðlaukur, avocado, fetaostur og ólífur skorið niður, blandað saman og kryddað með salti og hvítlaukspipar.

Ekki sleppa salatinu - það er algjört möst með þessum og gott að blanda við grjónin😌

Macros í rétt:
Kcal: 504
K: 45,2 gr
P: 47,3 gr
F: 15,3 gr

Til baka í bloggið