Mangó kjúklingur með ritz og feta

Mangó kjúklingur með ritz og feta

Þessi fljótlegi réttur slær alltaf í gegn og hér er aðeins macros vænni útgáfa af honum😌

Það sem þarf:
130 gr sætar kartöflur
100 gr butternut squash (má sleppa og hafa meira af sætum í staðin)
2 lúkur spínat
1/2 rauðlaukur (má sleppa)
1 kjúklingabringa (190 gr hér)
30 gr mango chutney
35 gr skyr/grískt jógúrt
4 ritz kex, brotið
20 gr feta kubbur
20 gr kotasæla
Kjúklingakrydd
salt og pipar

Aðferð:
1. Setjið sætu kartöflurnar og butternut squash í eldfast mót, kryddið með salt og pipar og setjið inn í ofn á 200°c í 20-30 mín
2. Skerið kjúklinginn í bita og kryddið með smá kjúklingakryddi.
3. Blandið saman mango chutney og skyri saman og þynnið smá með vatni.
4. Þegar kartöflurnar eru orðnar smá mjúkar er spínati, rauðlauk og kjúkling bætt við í mótið og mango chutney sósunni helt yfir.
5. Þá er ritx kexið sett yfir ásamt fetaostinum, kotasælunni og örlítið af salt og pipar. Þetta sett aftur inn í ofn í ca 20 mín eða þar til kjúklingurinn er eldaður.

Macros:
Kcal: 627
K: 68,8 gr
P: 61 gr
F: 11,6 gr

Hér er rétturinn á instagram hjá okkur 

Til baka í bloggið