Mjög einföld og góð sósa sem er hægt að nota á ýmislegt - mjög góð með kjöti, fisk, kartöflum og út á pasta!
Það sem þarf:
200 gr kotasæla
150 gr tómatar
2-3 hvítlauksrif
50 ml vatn
1 tsk pizza krydd (notaði heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum)
Basilika
Aðferð:
1. Tómatar og hvítlaukur sett í eldfast mót og inn í ofn á 180 gráður þangað til mjúkt
2. Setjið kotasælu í matvinnsluvél eða blender ásamt kryddum, vatni og tómatblöndunni. Blandið þar til silkimjúkt.
(ágætt að láta tómatana kólna örlítið áður en þeir fara út í blenderinn)
- Svo er hægt að hita sósuna á vægum hita í potti í smá stund ef þið viljið hana heita, hún gæti þó skilið sig aðeins ef hún er hituð of lengi
Macros í 100 gr
Kcal: 67
K: 3,2 gr
P: 6,9 gr
F: 3 gr
Grunnurinn er í raun bara kotasæla og vatn, svo er hægt að leika sér með kryddin, bæta við pestó, rjómaosti með bragði osfrv.
Hér er uppskriftin á instagam
