Korean Beef Bowl 🍚

Korean Beef Bowl 🍚


Þessi ljúffengi réttur er tilvalinn ef þið eigið afgangsgrjón eða hægt að nýta í “meal prep” - mjög einfaldur og fljótlegur, mæli með að prófa!

Það sem þarf fyrir 1:
- Grænmeti (var með lauk, papriku, gulrætur og sveppi)
- hvítlaukur og engifer
- hrísgrjón (40gr ósoðin)
- nautahakk (140gr hrátt)
- soya
- edik (notaði hrísgrjóna hér)
- hunang (eða önnur sæta)
- pipar
- Lime

Aðferð:
1. Sjóða grjón
2. Saxa grænmeti og steikja á pönnu með hvítlauk og rifinni engiferrót
3. Hakki bætt við og kryddað með ediki, soya og pipar - mikilvægt að smakka til hér
4. Allt sett i skál og toppa með koreander, lime og hot honey🌶️

Gott að bera fram með hvítkáli og grískri/sýrðum rjóma/skyri og jafnvel kimchi fyrir þarmaflóruna✨

Macros:
Kcal: 474
K: 64,1 gr
P: 40,9 gr
F: 7,3 gr
*notaði 3% hakk hér, gott að hafa í huga að fitulítið hakk þarf að krydda meira en “venjulegt”

 Hér er myndband af okkur elda réttinn á instagram 

Til baka í bloggið