Macros vænni útgáfa af þessari góðu kjúklingasúpu😋
Það sem þarf:
2 græn epli
4 gulrætur
1 laukur
1 msk ferskt engifer
3 tsk karry
1 tsk chili
7 dl vatn
2 kjuklingakrafts teningar
1 grænmetiskrafts teningur
1 dós tómatar í dós
1 dós kókosmjólk
5 dl léttmjólk
790 gr kjúklingabringur
Aðferð:
1. Gulrætur, epli og engifer rifið og sett í pott ásamt lauk og hvítlauk. Þetta er steikt þar til allt er orðið mjúkt. Þá er chili og karrý bætt út í og steikt í stutta stund.
2. Nú er vatni, kjúklinga- og grænmetis krafti og tómötum bætt við, suðan látin koma upp og súpan látin malla í ca 15 mín.
3. Á meðan eru kjúklingabringur skornar í litla bita og svo bætt við í pottinn ásamt kókosmjólk og léttmjólk.
Súpan er látin ná suðu og svo leyft að malla þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
4. Súpan svo smökkuð til með karrý, salti og pipar.
Macros í 100gr:
Kcal: 55
K: 3,5 gr
P: 6,4 gr
F: 1,6 gr
Þetta er frekar stór uppskrift, dugar fyrir ca 5-6 manns.
Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur
