Kjötbollur & Pasta

Kjötbollur & Pasta

Klassísk og góð!

Það sem þarf fyrir 3-4:
Kjötbollur:
600 gr kalkúnahakk
1 laukur
2 hvítlauksrif
50 gr eggjahvítur
50 gr kotasæla
30 gr raspur (líka hægt að nota brauð til að útbúa rasp)
1 msk nautakraftur
1-2 tsk salt
1 msk basilika eða ítalskt krydd

Sósa:
1 laukur (ca 100gr)
2 sellerí stönglar (35 gr)
2-3 gulrætur (100 gr)
2 hvítlauksrif
1 dós hakkaðir tómatar
1 msk tómatpúrra, rúmlega (25 gr)
salt, ítalskt krydd og chili flögur eftir smekk
1 dl vatn (eða eftir smekk)
1 msk kotasæla (25 gr)

Aðferð:
1. Byrjið á að útbúa sósuna með því að saxa grænmetið smátt og steikja á pönnu þar til það er orðið mjúkt
2. Bætið hökkuðu tómötunum út í ásamt tómatpúrrunni og kryddið. Svo er vatni bætt við (magn fer eftir hversu þykka þið viljijð hafa sósuna)
Leyfið sósunni að malla á meðan þið búið til kjötbollurnar
- hér er einnig hægt að nota töfrasprota eða matvinnsluvél til að mauka sósuna en mér finnst það óþarfi
3. Blandið öllum hráefnum fyrir bollurnar saman í skál og búið til jafnstórar bollur úr deiginu
4. Bollurnar settar inn í ofn á 180 gráður í ca 15 mínútur (fer eftir stærð)
5. Bætið kotasælu við sósuna og smakkið til hvort það þurfi að bæta við kryddum. Setjið svo bollurnar út í þegar þær eru tilbúnar.
6. Sjóðið pasta sem þið viljið nota og svo er gott að bera þetta fram með ferskri basiliku og parmesan

Macros í 100 gr:
Bollur:
Kcal: 146
K: 5,2 gr
P: 23,2 gr
F: 3,5 gr

Sósa:
Kcal: 34
K: 4,9 gr
P: 1,7 gr
F: 0,4 gr

Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur

Ég geri yfirleitt 2x uppskrift af þessu og gerði það í videoinu, mjög gott að eiga í afgang og bollurnar geymast vel í frysti - njótið vel!

Til baka í bloggið