Karrý fiskur með hrísgrjónum

Karrý fiskur með hrísgrjónum

Það sem þarf:
700 gr ýsa eða þorskur
350 gr ab mjólk
3 tsk karrý
80 gr sveppir (má sleppa)
250 gr hrísgrjón
90 gr 17% rifinn ostur
salt

Aðferð:
1. Hrísgrjón soðin (gott að setja salt í vatnið í pottinum)
2. Ab mjólk, karrý og salt (ca msk) hrært saman
3. Soðnu grjónin sett í eldfast mót, fisknum raðað ofan á og hann saltaður svo er sneiddum sveppum dreift yfir.
4. Sósu hellt yfir réttinn og hann settur inn í ofn við 200 gráður í ca 20 mín
5. Takið réttinn út úr ofninum, stráið ost yfir og setjið svo aftur inn í ofn þar til osturinn hefur bráðnað.

Macros í 100gr
Kcal: 102
K: 11,4 gr
P: 10 gr
F: 1,8 gr

Þennan rétt ber ég oft fram með gulrótarsalati: blanda saman rifnum gulrótum og rúsínum og kreisti svo appelsínusafa yfir🥕

Hér er uppskriftin á instagram 

Til baka í bloggið