Kalkúnafylling

Kalkúnafylling

Það sem þarf:
160 gr sveppir
130 gr epli
150 gr laukur
90 gr sellerí
60 gr döðlur
55 gr brauð
55 gr philadelphia light
Kalkúnakrydd, hvítlaukskrydd og salt og pipar

Aðferð:
1. Skerið grænmeti og döðlur smátt, steikið á pönnu í smá stund og kryddið.
2. Bætið rjómaostinum við.
3. Skerið brauðið í teninga og ristið í ofni í stutta stund (eða rista brauðsneið og skera í teninga). Bætið svo brauðinu á pönnuna og blandið saman við.
4. Allt sett í eldfast mót og inn í ofn á 180 gráður í ca 20-30 mín eða þar til að fyllingin hefur tekið á sig ágætan lit.

Macros í 100gr
Kcal: 128
K: 23,1 gr
P: 4,7 gr
F: 1,8 gr

Hér er uppskriftin á instagram 

Til baka í bloggið