Auðveldur og góður 20 mín réttur!
Það sem þarf fyrir 3-4:
Satay sósa:
200 gr létt kókosmjólk
50 ml kjúklingakraftur (1/2 kjúklingateningur leystur upp í heitu vatni)
20 gr hnetusmjör
15 gr hnetusmjörsduft
1/2 msk sriracha (eða eftir smekk)
1 tsk salt
1/2 msk sykur/hunang (eða önnur sæta)
1/2 msk soya
Kalkúnn:
600 gr Kalkúnahakk (1 pakki)
2 gulrætur (130 gr)
1 laukur (140 gr)
2 hvítlauksrif
1/2 msk karrý
1/2 tsk túrmerik
1 tsk paprika
1/2 tsk kanill
1/2-1 tsk salt
Aðferð:
1. Blandið öllum hráefnum í satay sósuna saman í skál nema sætunni og soya.
2. Setjið soya og sykur/hunang (eða aðra sætu) í aðra skál og hitið í örbylgju í ca 20-30 sek þar til þetta hefur þykknað aðeins. Bætið svo við hnetusósuna. Þetta er sett til hliðar.
3. Skerið gulrætur og lauk og steikið á pönnu í stutta stund ásamt hvítlauk. Þegar grænmetið er orðið mjúkt er hakkinu bætt við.
4. Þegar hakkið hefur tekið á sig smá lit er kryddunum bætt við.
5. Næst er satay sósunni bætt á pönnuna og þetta látið malla í nokkrar mínútur - gott að smakka til með kryddum.
Mér finnst gott að bera réttinn fram með hrísgrjónum, kóríander, salthnetum og lime😌
*í myndbandinu gerði ég tvöfalda uppskrift, ég skipti niður afgangnum í rennilásapoka og frysti - fullkomið í nesti eða kvöldmat seinna.
Macros í 100gr:
Kcal: 118
K: 4,1 gr
P: 15,1 gr
F: 4,6 gr
Hér er uppskriftin á instagram síðunni okkar
