Mælum með að gera tvöfalda uppskrift, mjög gott að eiga afgang af þessu!
Ef ég á afgang skipti ég honum í nokkra skammta og set hvern skammt í poka inn í frysti þá er svo lítið mál að græja góða máltíð þegar maður hefur lítinn tíma.
Það sem þarf:
1 rauðlaukur (100 gr)
2-3 hvítlauksrif
2-3 gulrætur (ca 100 gr) (má sleppa)
600 gr kalkúnahakk
400 gr tómatar í dós
20 gr tómat púrra
1 nautakraftur og grænmetiskraftur (eða ca matskeið af hvoru)
salt, pipar, oregano og chili (ca 1 tsk af hvoru)
400 gr kotasæla
Lasagna plötur - fer eftir stærð á fati (notaði ca 75 gr ferskar hér)
70 gr rifinn ostur (fer líka smá eftir stærð á fati)
Aðferð:
1. Skera lauk, hvítlauk og gulrætur smátt og steikja þar til mjúkt
2. Hakki bætt við og kryddað vel
3. Þegar hakk er orðið gegnum steikt er tómötum og púrrunni bætt við ásamt nauta- og grænmetiskrafti. Þetta er látið malla í smá.
Gott að smakka til hér og bæta við kryddi eftir þörfum - kalkúnahakk þarf að krydda meira en nautahakk.
4. Raða í fat - hakk, pasta, kortasæla til skiptis (finnst gott að hafa 2 lög af pastaplötum) og svo ost yfir.
5. Rétturinn fer inn í ofn við 180 gráður í ca 30-40 mín (fer eftir pasta plötum).
Hér notaði ég ferskt pasta þá tekur þetta styttri tíma í ofninum.
Gott að bera fram með salati og hvítlauksbrauði.
Macros í 100 gr:
Kcal: 111
K: 6,3 gr
P: 14,6 gr
F: 4,5 gr
Hér getur þú séð video af okkur á instagram búa til réttinn
