Það sem þarf:
200 gr kalkúnahakk
1 msk taco eða pizza krydd
laukur (má sleppa)
1/2 tómatur
40 gr light mozzarella
10 gr parmesan
Basilika
Aðferð:
1. Setjið kalkúnahakkið í skál, skerið laukinn smátt og bætið við hakkið ásamt kryddum
2. Fletjið hakkið út á bökunarpappír og raðið tómat- og mozzarella sneiðum og basiliku á helminginn. Brjótið saman og stráið parmesan yfir.
3. Þetta er sett í airfryer á 180°C í ca 15 mínútur
Macros:
Kcal: 394
K: 12,9 gr
P: 55,5 gr
F: 12,1 gr
Hér er uppskriftin á instagram
Mæli með að dýfa í pizza sósu eða bæta henni við í skref 2
Þar sem þetta er mjög kolvetnaléttur réttur er gott að hafa t.d hvítlauksbrauð með eða kartöflumús!
