Fiskréttur með Indversku ívafi

Fiskréttur með Indversku ívafi

Ótrúlega góður fiskréttur með nokkurskonar risotto-i😋

Það sem þarf fyrir 4:
Hrísgrjónablanda:
200 gr ab mjólk
2 msk engiferrót
1/2 tsk cayanne pipar
1 tsk garam masala
saffran á hnífsoddi eða 1 tsk turmerik
1 tsk sæta (sykur/stevia/hunang…)
1-2 tsk salt
2 laukar
20 gr möndlur (ca 3 msk)
20 gr rúsínur
2 1/2 dl hrísgrjón
6 dl vatn
1 lárviðarlauf (má sleppa)

Fiskur (notaði lönguhnakka hér)
turmerik
garam masala
Salt

Aðferð:
1. Krydd fyrir hrísgrjónablönduna blandað saman við ab mjólk
2. Laukar skornir í sneiðar og bætt við jógúrtblönduna ásamt hrísgrjónum, möndlum og rúsínum. Þetta er síðan brúnað á pönnu í stutta stund
3. Þá er vatninu helt yfir og lárviðarlaufið sett með. Lok er sett á pönnuna og þetta látið sjóða í ca 20-30 mín eða þar til að grjónin eru elduð. Ágætt að hræra í þessu af og til svo að þetta brenni ekki við.
4. Á meðan er fiskurinn skorinn í sneiðar, lagður í eldfast mót og kryddaður með túrmeriki, garam masala og salti
5. Fiskurinn settur inn í ofn á 200 gráður í ca 15 mín eða þar til eldaður í gegn (fer eftir stærð flakanna)

Þennan rétt er gott að bera fram með t.d. döðlum, hnetum, banana, kókos, raita jógúrtsósu og góðu salati.

Macros í 100 gr af hrísgrjónablöndunni:
Kcal: 102
K: 19,8 gr
P: 1,3 gr
F: 2,8 gr

Einnig er hægt að nota annan próteingjafa með þessum rétti, t.d. kjúkling eða rækjur!

Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur

Til baka í bloggið