Fiskréttur með asísku ívafi

Fiskréttur með asísku ívafi

Það sem þarf fyrir 3:
650 gr langa eða þorskhnakkar

Marinering:
4 msk soya sósa (60 ml)
3-4 hvítlauksrif
1-2 msk rifin engiferrót
1/2-1 tsk chili flögur
1 lime
1 msk red curry paste (15 gr)
1 msk stevía (eða önnur sæta)
1 lúka kóríander

Toppur:
40 gr döðlur
25 gr hnetur (var með saltaðar kasjúhnetur og möndlur)

Aðferð:
1. Blandið saman öllum hráefnum í marineringu og bætið svo fisk út í (líka hægt að setja öll hráefnin í blender).
Best ef fiskurinn fær að liggja í marineringunni í 1-2 klst.
2. Fiskurinn settur inn í ofn við 200°c í ca 10 mín
3. Fiskurinn svo tekinn út og hnetum og döðlum stráð yfir og settur aftur inn í ofn í 5-10 mínútur (fer smá eftir stærð og þykkt flakanna) eða þar til fiskurinn hefur náð ca 63°c í kjarnhita

Macros í 100gr:
Kcal: 109
K: 5,7 gr
P: 16,4 gr
F: 2,6 gr

Mæli með að bera fram með hrísgrjónum, kóríander og góðu salati!

Hér sérð þú uppskriftina á instagram hjá okkur 

Til baka í bloggið