Það sem þarf:
620 gr fiskihakk (ýsa/þorskur)
- hægt að kaupa fiskihakk í flestum fiskbúðum, annars hægt að nota matvinnsluvél
100 gr gulrætur
130 gr rófa
1 laukur (ca 100 gr)
100 gr létt kókosmjólk
50 gr eggjahvítur
45 gr hveiti
1-2 msk grænmetiskraftur (ca 10 gr)
1-2 msk fiskikrydd (hægt að nota allskyns krydd)
salt og pipar
Aðferð:
1. Setjið gulrætur, rófu og lauk í matvinnsluvél og setjið svo í skál
2. Hakka fiskinn ef þið eruð ekki með fiskihakk
3. Blandið rest af innihaldsefnum saman við og mótið bollur
4. Inn í ofn á 180 gráður í ca 30-40 mín (fer eftir stærð á bollunum)
Mér finnst gott að bera þær fram með hrísgrjónum, karrísósu og salati
Mæli með að gera stóra uppskrift og eiga í frysti!
Macros:
Kcal: 98
K: 6,8 gr
P: 14,4 gr
F: 1,4 gr
Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur
