Cottage Pie

Cottage Pie

Ekta comfort food í kalda veðrinu❄️

Það sem þarf fyrir 4:
1 tsk olía
Grænmeti
- hér 2 stilkar sellerí, 1 laukur, 4 gulrætur
3-4 hvítlauksrif
700 gr nautahakk (notaði 2-3% fitu)
* Ef þið notið feitara hakk þarf líklega minna af kryddi
55 gr tómat púrra
2 msk nautakraftur
smá vatn ef þarf
Timían eftir smekk
2 msk Worcestershire sósa
1 tsk dijon sinnep (má sleppa)
1 msk sriracha sósa (má sleppa)
1 dós gular baunir
700 gr kartöflur
2 dl mjólk
Salt og pipar

Aðferð:
1. Byrjið á að sjóða kartöflur fyrir kartöflumúsina
2. Skerið grænmeti smátt og steikið á pönnu upp úr olíu í stutta stund, ásamt hvítlauk
3. Bætið hakki við og kryddið með salti, pipar, natuakrafti og timían
4. Bætið við tómat púrru, worcestershire sósu, sinnepi, sriracha og vatni. Látið þetta malla í smá stund.
- í stað Worcestershire sósu er einnig hægt að blanda saman 2 msk tómatsósu, 1 msk soya, 2 tsk edik
5. Bætið við gulum baunum.
6. Kartöflumús: þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar í gegn er vatni helt frá og þær stappaðar, salti og mjólk svo bætt við í skömmtum (smakka til)
7. Hakkið sett í eldfast mót og kartöflumús ofaná. Þetta er svo sett í 200°c heitan ofn í 15-20 mínútur eða þar til kartöflumúsin hefur tekið á sig smá lit

Gott að bera fram með kotasælu og salati😋
Svo ef þið eigið afgangshakk er tilvalið að nýta það í þennan

Macros í 100 gr
Kcal: 98
K: 10,5 gr
P: 9,4 gr
F: 1,7 gr

Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur 

Til baka í bloggið