Það sem þarf:
650 gr 2-3% nautahakk
Grænmeti, setti hér:
- 1 rauðlauk
- 110 gr sveppir
- 140 gr paprika
- 140 gr gulrætur
Hvítlaukur eftir smekk
Taco krydd (1 pakki)
1 dós nýrnabaunir
1 krukka salsasósa (300 gr)
Tortilla vefjur
Rjómaostur (notaði Philadelphia Light) ca 1-2 msk (16gr) í hverja vefju
Aðferð:
1. Grænmeti skorið smátt og steikt á pönnu í stutta stund, svo er hvítlauk bætt við
2. Þegar grænmetið er orðið mjúkt er hakkinu bætt við á pönnuna og kryddað
3. Þegar hakkið er eldað er nýrnabaunum bætt við ásamt salsasósu og þessu leyft að malla í stutta stund - smakka til hér hvort það þurfi meira krydd
4. Svo er hakkblandan sett í vefjur ásamt rjómaosti (ca 150 gr í hverja vefju)
5. Tortilla kökunum rúllað upp og sett í eldfast mót
6. Þetta er bakað við 200 gráður í ca 15 mín eða þar til kökurnar eru orðnar smá gylltar
- Hér er líka gott að toppa kökurnar með osti og einnig hægt að skipta út rjómaostinum fyrir t.d. mexico ost
Macros í 1 vefju
Kcal: 283
K: 34,8 gr
P: 23,1 gr
F: 6,1 gr
Macros í 100gr af hakkblöndu:
Kcal: 88
K: 5,8 gr
P: 11,9 gr
F: 1,5 gr
Þennan rétt ber ég oft fram með sýrðum rjóma og guacamole🥑
Þetta er frekar stór uppskrift, dugar vel fyrir 4-5 fullorðna en mjög gott að eiga í nesti og líka snilld að eiga í frysti!
Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur
