Bláberja-sítrónu creami

Bláberja-sítrónu creami

Það sem þarf:
190 gr mjólk (notaði möndlumjólk)
50 gr frosin jarðaber
40 gr frosin bláber
30 gr banani
15 gr próteinduft (notaði vanillu)
65 gr hreint skyr
safi úr 1/2 sítrónu
smá salt

Aðferð:
1. Setjið öll innihaldsefni í creami ílátið og blandið saman með töfrasprota (líka hægt að nota blender)
2. Frystið í amk 12 klst
3. Takið út úr frysti og látið standa í 5-10 mín, látið svo heitt vatn renna utan um ílátið í ca 1 mín
4. Setjið í ninja creami á light ice cream mode og respin-ið þangað til að áferðin er orðin “creamy” (þurfti 2x hér)
Finnst gott á milli “spin-a” að skafa meðfram hliðunum með hníf til að losa “klakann” frá.
5. Toppið með því sem ykkur dettur í hug!

Hægt að leika sér með þessa uppskrift, t.d. endurgera 1001 nótt, osfrv 😋

Macros:
Kcal: 191
K: 19,5 gr
P: 19,9 gr
F: 3,4 gr

Hér er uppskriftin okkar á instagram 

Til baka í bloggið