Einföld útgáfa af Kóreska réttinum “Bibimbap”😋
Það sem þarf:
Hrísgrjón
Nautaþynnur
Gulrætur
Laukur
Papirka
Agúrka
Engifer
Egg
Salt og pipar
Marinering fyrir nautaþynnur:
(var með ca 1kg af nautaþynnum hér)
1 lime
1 msk sykur eða önnur sæta (notaði sukrin gold)
4 msk soya
1 msk edik (notaði hrísgrjónaedik)
3-4 hvítlauksrif
1 msk gochujang
Engifer
Jógúrtsósa (má sleppa):
Skyr/grísk jógúrt
Hvítlaukur
Salt
vatn til að þynna
Aðferð:
1. Hrísgrjón soðin
2. Öllum hráefnum í marineringu blandað saman og nautaþynnunum leyft að marinerast
3. Gulrætur, laukur og paprika skorið í þunnar sneiðar, sett á ofnplötu, saltað og sett inn í ofn á 180 gráður í 20-30 mín
4. Öllum hráefnum í jógúrtsósu blandað saman, ef þið viljið hafa hana með
5. Gúrkan rifin í þunnar sneiðar, mér finnst gott að “pikkla” gúrkustrimlana í stutta stund, salta og leyfi þeim að liggja í ediki meðan rétturinn er undirbúinn, en ekki nauðsynlegt.
6. Nautaþynnur steiktar á pönnu þar til þær eru eldaðar í gegn
Ef ég er með mikið af kjöti steiki ég það oft í 2-3 skömmtum
7. Næst eru eggin spæld
8. Hrísgrjónum skipt niður í skálar, nautaþynnurnar settar ofan á ásamt grænmetinu, toppað með eggi, sushi engifer, sriracha og jógúrtsósunni
Hefðbundið bibimbap er með gochujang sósu en það er hægt að taka hluta af marineringunni frá og nota það sem sósu - mér finnst það ekki nauðsynlegt og ég nota oft bara sriracha sósu til að fá smá spice
Svo má vel sleppa jógúrtsósunni en mér finnst gott að hafa hana með til að vega á móti þessu sterka
Um að gera að bæta við því grænmeti sem er til, í hefðbundna réttinum er t.d. oft baunaspírur, sveppir, steikt spínat og kimchi
Nautaþynnur eru mjög “macros vænar” en hér fyrir neðan eru næringargildin - mjög auðvelt að útbúá góða og einfalda skál sem hentar þínum tölum!
Kcal: 115
K: 0 gr
P: 22 gr
F: 3 gr
Hér er uppskriftin á instagram hjá okkur
